fimmtudagur, ágúst 28, 2003

Keikóbollur

Á mbl.is er sagt frá því að manngæfa drápshvelinu sigga(keikó) hefur verið boðið að dvelja það sem eftir er æfi sinnar í einhverjum firði í Noregi.
Hvernig nákvæmlega honum var boðið þetta veit ég ekki. Ég hef heyrt um tilraunir til samskipta við búrhvali og höfrunga en nú virðist sem norðmenn hafi fundið út leið til að tala við háhyrninga.
GOTT HJÁ ÞEIM!

En aðstandendur sigga(keikó) vilja nú samt helst að hann fari og blandist inn í hóp drápshvela von bráðar og eru mjög bjartsýnir á að það gerist.
Ég persónulega held að svo lengi sem hinir háhyrningarir séu ekki jafn fúsir til að mata sigga(keikó) og aðstandendur og kostendur hans að þá eigi hann engan séns.

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Gaman saman

Mikið rosalega hlýtur að vera gaman að vinna á norðurljósum núna. Í gær var Árna Snævarr sagt upp og í dag hefur Snorra Má Skúlasyni verið sagt upp störfum.
Ef við lítum á listann hingað til þá lítur hann svona út:
Ólöf Rún Skúladóttir, Hulda Gunnarsdóttir, Bryndís Hólm, Margrét Stefánsdóttir, Dóra Takefusa, Þorsteinn J, Árni Snævarr, Snorri Sturluson og Snorri Már Skúlason.

Allt meira og minna þungaviktarnöfn í íslenskum fjölmiðlum.

Heimild Fréttir.com

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Jahá

Ingibjörg sólrún var rétt í þessu að segja að hún teldi kosningar góðar til að leita eftir umboði.
Já ok, hún hefur ekki tekið þátt í kosningum eða prófkjöri innan flokks síðan hún var í kvennalistanum.
Henni var alltaf stillt upp á R-listanum og svo var henni ásamt reyndar öðrum hent inná lista samfó í reykjavík norður 4 mánuðum eftir prófkjör þar.

Svo var hún að reyna að afsaka þessa skrýtnu stöðu sem hefur alltaf verið í samfylkingunni með því að segja að þetta væri ungur flokkur sem væri ennþá að móta sínar aðferðir. Annað skildist manni reyndar fyrir kosningar þegar talað var um nýjafnaðarstefnu, umræðustjórnmál og það hversu lýðræði væri þeim hjartfólgið.

Ohh so góð

Það verður ekki sagt annað um Ingibjörgu Sólrúnu en að hún sé góðhjörtuð manneskja. Til að leyfa Össuri að halda þeirri litlu sjálfsvirðingu sem hann á eftir hefur hún ákveðið að bjóða sig ekki fram til formans samfylkingarinnar fyrr en 2005. S.s. Össur má vera formaður þangað til að það skiptir máli hver er formaður.

Og svo er frábært að sjá hversu mikla virðingu stjórnarmenn samfylkingarinnar bera fyrir almennum flokksmönnum og lýðræði. Þrátt fyrir að um 90% kjósenda samfó vilji ISG sem formann strax þá skiptir það auðvitað engu máli. Stjórn flokksins skal ákveðin af fámennum hópi og aðeins einn býður sig fram í hvert laust embætti.
Drullastu frá!

Eitt sem fer í taugarnar á mér. Núna er skólinn auðvitað nýbyrjaður og fólk er svona að finna sér sinn stað og allt í lagi með það. En útaf því er auðvitað ákveðið kraðak á þessum týpýsku stöðum, á kaffistofunni, göngunum og matsalnum, þegar hjarðirnar týnast út úr tímum.

Eitt fer þó ótrúlega í taugarnar á mér. Það er hvar fólk velur að hópast saman. Þetta eru alls ekki bara busar og þetta gerist allstaðar. En hérna í skólanum lýsir þetta sér þannig að á þröngum gangi sem liggur framhjá kaffistofunni og að matsalnum stoppar fólk iðulega og talar saman, gjörsamlega grunlaust um að það séu til AÐRAR manneskjur sem þurfa að nota ganginn líka. Eins rétt innan við hurðina í matsalinn, það er týpískur staður þar sem svona fífl hópast saman og fara að bera saman þverröndóttu svarthvítu peysurnar og bolina sem tröllríða hnakkagellum skólans þessa dagana!


pirrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
Tréspýtukubbar

Mér finnst ótrúlega fyndið þegar fólk kallar sama hlutinn ótrúlega mörgun nöfnum í einu. Ég fór að hugsa um þetta því kennarinn sem ég var með áðan sagði eitthvað svona svipað og tréspýtukubbar en ég man bara alls ekki hvað það var!!

Þetta er semsagt tilgangslausasta færsla mín í lengri tíma. Sem er gott, sem er mjög gott.
Nei hæ

Jæja skólablogg númer tvö hjá mér. Nýja álman hér í MK er drulluflott, það bara verður að segjast. Skjávarpar í öllum stofum(reyndar eru nú komnir skjávarpar í margar aðrar líka) og einhverjar sérstakar töflur sem er hægt að tengja einhvern vegin við tölvur og gera eitthvað sniðugt með, það kemur í ljós seinna þar sem álman er nú bara búinn að vera í notkun í einn og hálfan dag og það á eftir að setja upp þráðlausa netið þar.

Gærkvöldinu eyddi ég með birki vini mínum sem er að fara að flytja til eyja í dag. Það verður skrýtið líf að hafa hann þar, en maður sér nú til hvernig þetta verður allt saman. Við kíktum fyrst upp í grafarvog á Hjört og Sonju, fórum svo að hitta vinkonu birkis hjá tjörninni í reyjkavík. Þurftum að bíða soldið lengi þannig að við vorum soldið að leika með öndunum. Þeim finnst plast vont en eru alveg til í að japla soldið á pappír. Sennilega býða endurnar á tjörninni þess seint bætur að við birkir vorum þar á ferð í gær.
Svo var það kaffihús og bjór.

Sá soldið skemmtilegt á Times áðan, maðurinn sem drap prestinn í fangelsinu í masachusetts í gær sat inni fyrir morð sem tengist fordómum gegn hommum. Sniðugt að setja hann á deild með presti sem misnotaði unga drengi ha!?!

mánudagur, ágúst 25, 2003

Skrýtið

Þjóðaratkvæðagreiðslur um hvort þjóðir eigi að ganga í ESB þá er yfirleitt núna kosið þangað til jákvæð útkoma fæst. Þ.e. ef neikvæð útkoma er úr fyrstu kosningum þá er yfirleitt kosið aftur seinna. En þegar jákvæð útkoma er þá er ekki kosið aftur. Skrýtið.

sunnudagur, ágúst 24, 2003

Skólinn vííííí

Á morgun hefst skólinn aftur. Þá glæðist nú væntanlega yfir blogginu og aldrei að vita nema að maður nái sama krafti og í fyrra þegar fleiri síðurnar af bulli runnu uppúr mér á degi hverjum. Það er nú nefnilega auðvitað þannig að ég er með tölvuna í skólanum og þar er að sjálfsögðu þráðlaust net þannig að maður getur notað tækifærið á milli tíma til að blogga það sem manni liggur á hjarta.

Sem er oft mikið hjá mér en gleymist oft jafnóðum.

En til að fagna skólabyrjun þá er það kók og devitos hjá mér í kvöld....

hamingja, endalaus hamingja!

laugardagur, ágúst 23, 2003

Tjörulög?

Stundum er ég voða vitlaust.

Ok ég er almennt hrikalega vitlaus en allavega, eit dæmi um það.

Í fleiri ár hélt ég að lagið þarna smíða dæmið væri svona:

Það vantar spýtur og það vantar sög
það vantar málningu og TJÖRULÖG!!!!

Af hverju hélt ég þetta? Og af hverju tók það mig mörg ár að komast að því að þetta er vitlaust? Og hvað í andskotanum er tjörulögur?

ps. þetta er semsagt fjörug lög en ekki tjörulög.
Why?

Af hverju í ósköpunum að safna skóm? Og eiga meira en þúsund pör? Og geyma þau öll í íbúðinni sinni?

Hvaða helvítis geðveiki er þetta?

fimmtudagur, ágúst 21, 2003

"It's the cool of the evening, the sun's goin' down
I wanna hold you in my arms, I wanna push you around
I wanna break your bottle and spill out all your charms
Come on baby, let's set off all the burglar alarms."


"I may be drunk but at least I'm not insane."

"I may be drunk but at least I'm not insane."

"Pour me a cab, I just can't drink no more."

"The piano has been drinking, not me."

"Champaign for my real friends and real pain for my sham friends."

"Veal cutlet came down...started beatin' the shit outa my cuppa coffee...coffee just wasn't strong enough to defend itself...."

"My friends think I'm ugly, I gotta masculine face."

"Change your shorts, change your life, change your life, change into a 9-year-old Hindu boy, get rid of your wife..."

"I knew him when he was nothing and he hasn't changed a bit."

"And it is such a sad old feeling, All the fields are soft and green. And it's memories that I'm stealing, But you're innocent when you dream."

"The cat'll sleep in the mailbox and we'll never go to town, till we bury every dream in the cold cold ground."

"And the earth died screaming As I lay dreaming"

"The bullets that lead straight to the devil's world, just like marijuana leads to heroine."

"Won't you tell me, brave captain why are the wicked, so strong, how can the angels get to sleep when the devil leaves his porch light on."

"Theres a golden moon that shines up through the mist
And I know that your name can be on that list
Theres no eye for an eye theres no tooth for a tooth
I saw Judas Iscariot carrying John Wilkes Booth
He was down there by the train."

"If you've lost all hope, If you've lost all your faith
I know you can be cared for, I know you can be safe
And all of the shamefuls, and all of the whores
And even the soldier who pierced the side of the Lord
Is down there by the train."

"In the land of the blind, the one-eyed man is king."

"Never trust a man in a blue trench coat, never drive a car when you're dead"

"I was born in the back seat of a Yellow Cab in a hospital loading zone and with the meter still running. I emerged needing a shave and shouted 'Time Square, and step on it!'"

Tom Waits. Maðurinn er snillingur.
Skortur á hormónum

Mér er alveg sama þótt að ég líti út fyrir að vera gersneyddur öllu testósteróni fyrir það en mér finnst þetta samt svooooo satt!

A few reasons why guys like girls...

1. They will always smell good even if it's just shampoo
2. The way their heads always find the right spot on our shoulder
3. How cute they look when they sleep
4. The ease in which they fit into our arms
5. The way they kiss you and all of a sudden everything is right in the world
6. How cute they are when they eat
7. The way they take hours to get dressed but in the end makes it all worth while
8. Because they are always warm even when its minus 30 out side
9. The way they look good no matter what they wear
10. The way they fish for compliments even though you both know that you think she's the most beautiful thing on this earth
11. How cute they are when they argue
12. The way her hand always finds yours
13. The way they smile
14. The way you feel when you see their name on the call ID after you just had a big fight
15. The way she says "lets not fight anymore" even though you know that an hour later you will be arguing about something
16. The way they kiss when you do something nice for them
17. The way they kiss you when you say "I love you'
18. Actually ... ! ! just the way they kiss you...
19. The way they fall into your arms when they cry
20. Then the way they apologize for crying over something that silly
21. The way they hit you and expect it to hurt
22. Then the way they apologize when it does hurt ... (even though we don't admit it)!
23. The way they say "I miss you"
24. The way you miss them
25. The way their tears make you want to change the world so that it doesn't hurt her anymore.....Yet regardless if you love them, hate them, wish they would die or know that you would die without them ... it matters not. Because once in your life, whatever they were to the world they become everything to you. When you look them in the eyes, traveling to the depths of their souls and you say a million things without trace of a sound,you know that your own life is inevitable consumed within the rhythmic beatings of her very heart. We love them for a million reasons, No paper would do it justice. It is a thing not of the mind but of the heart!


En mér finnst ég samt ekkert minni karlmaður fyrir vikið!
Höddi Skinka

Nú rétt áðan var Hörður Magnússon að segja frá því að ástralir og þjóðverjar hefðu verið að keppa á heimsmeistaramótinu í "hokkí". (er s.s. að horfa á e-n íþróttaþátt á sýn).

Nú svo er sýnt frá þessum leik og mér til mikillar furðu þá voru menn þarna að keppa ekki á svelli heldur á gerfigrasi. Þeir voru ekki á skautum heldur í skóm og þeir voru ekki með hjálma eða annan hlífðarbúning. Einnig voru þeir með allt öðruvísi kylfur heldur en eru notaðar í hokkí.

Þeir sem þekkja til íþrótta(og eru jafn smámunasamir og ég) skilja væntanlega gremju mína yfir þessu. Það sem Höddi "ég-hata-manutd" skinka kallar hokkí er í raun íþróttin Bandí, en nú um þessar stundir er einmitt í gangi heimsmeistaramótið í hokkí og er ástralir einmitt líklegir til afreka þar.

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

MK

Já þá er maður að fara að byrja aftur í skólanum. Samkvæmt skipulagi þá á ég að byrja í fyrramálið. En þar sem byggingaframkvæmdir á íslandi, og þá sérstaklega þær sem fara fram við menntaskólann í kópavogi, fara ekki eftir neinu skipulagi þá byrjum við ekki fyrr en á mánudaginn. Nýja álman í skólanum er nánast tilbúin en það á eftir að setja inn töflur, borð og stóla í þær.

Ég er búinn að fá töfluna mína og líst nokkuð vel á. Er í tveimur náttúrufræðiáföngum sem þykir óvenjulegt miðað við að ég er nú einu sinni á Félagsfræðibraut. En ég verð s.s. í bæði líffræði og jarðfræði í vetur. Gaman að því. Svo er þetta venjulega, íslenska, seinasti þýskuáfanginn, tölvustærðfræði og saga.
Held reyndar að ég sé búinn með söguna sem ég er settur í en ég er samt ekki viss. Það kemur í ljós.

Ég minni enn aftur á að þótt að gemsinn minn sé bélaður þá er ég með heimasíma sem virkar mjög vel. Þeir sem eru ekki með hann látið mig vita í kommentunum og ég læt ykkur fá hann ef mér finnst þið eiga það skilið. Eða þá s.s. númerið, síminn verður áfram hér heima.

mánudagur, ágúst 18, 2003

Úff

Góðann daginn góðir hálsar.
Oft hefur maður heyrt fólk tala um að það ætli að hætta að drekka eftir heiftarleg fyllerí. Eftir föstudagskvöldið skil ég það fólk að vissu leyti. Ekki það að ég hafi verið neitt þunnur á laugardaginn. Nei fjarri því. En eftir föstudaginn er ég með ónýtan ökkla enn einu sinni og það sem meira er ónýtan síma. Ég s.s. datt, eða réttara að segja missteig mig hrottalega og hef væntanlega teygt á liðböndunum utan á hægri ökklanum og er marinn og með brunasár á vinstra hné og með smá skeinur á hendinni.

En þótt að ég skilji nú þegar fólk talar um að hætta að drekka þá ætla ég sjálfur ekki að lýsa svoleiðis hlutum yfir því ég hef aldrei séð neinn standa við svona og mig langar ekkert að hætta að drekka sjálfur.

En s.s. ástæðan fyrir því að það hefur ekki verið hægt að ná í mig í gemsanum undanfarið er að hann er ónýtur, en ég er auðvitað með heimasíma líka sem er í fínu lagi.

fimmtudagur, ágúst 14, 2003

Landoverbaptist.com

Ég bara trúi því ekki að enn þann dag í dag sé til fólk sem heldur að landoverbaptist sé "alvöru" síða.
Þeir sem halda þessari síðu úti eru þeir sömu og halda úti whitehouse.org síðunni.

Ef þið lesið whitehouse síðuna þá sjáið þið af hverju ég trúi þesu ekki.

miðvikudagur, ágúst 13, 2003

Árekstur

Af einhverjum ástæðum, ég veit ekki hverjum, hefur mér alltaf fundist árekstrar skipa við hvort annað og flugvéla við hvorar aðrar hálf asnalegir eitthvað.
Kannski er það bara ég.

Toppurinn yrði auðvitað árekstur skips og flugvélar.
Halló?

Hvernig er það, les engin þetta helvítis blogg mitt lengur? Er ég að blogga fyrir sjálfan mig?
Setti inn mynd af sjálfum mér og bjóst við að fá allavega eitthvað abuse fyrir vikið en ekkert gerist!

Eða þarf ég kannski að bíða þangað til skólaskíturinn fer að líða hingað inn aftur?

þriðjudagur, ágúst 12, 2003

Equilibrium

Var að horfa á ótrúlega flotta mynd. Hún heitir semsagt það sama og titillinn(nenni ekki að skrifa þetta aftur) og gerist í framtíðinni, og fólk má ekki hafa tilfinningar og tekur lyf til að koma í veg fyrir það og það er sérstök lögregla sem er geðveikt kúl og Sean Bean og Christian Bale og flotterí.
Ef þessi mynd hefði fengið sama budget og matrix þá hefðu bræðurnir þarna aldrei fengið pening til að gera númer 2 og 3 af matrix.(ok kannski ekki alveg en samt!)

Stöð 2 er í þvílíku yfirklóri þessa dagana útaf ritskoðuninni með kaupþings-búnaðarbanka fréttina sem loksins fékk að fljóta með í gær. Sem dæmi um það sem þau eru að gera til að reyna að breiða yfir klúðrið er að spyrja alla ráðherra hvort þeir hafi þegið veiðiferðir frá hinum og þessum.
Þeir sendu fyrirspurnir til ráðuneytanna sjálfra. Þeir fengu það svar frá forsætisráðuneytinu að Davíð Oddsson stundaði ekki laxveiði í vinnu sinni sem forsætisráðherra og að þeir hefðu ekki upplýsingar um hvað hann gerði í frítíma sínum. Sem er auðvitað það eina sem þeir gátu sagt en fréttamenn stöðvar 2 reyndu þá að halda því fram að þeir hefðu verið að spyrja ráðherran sjálfan en ekki ráðuneytið, sem er skrýtið miðað við að þeir sendu fyrirspurn til
ráðuneytisins.

Fífl


Þetta mun vera ég.
Hafþórsson

Mikið rosalega erum við íslendingar heppnir! Nú starfar nefnilega í íslenskum stjórnmálum maður að nafni Magnús Þór Hafþórsson, sem er varaformaður frjálslynda flokksins. Magnús er einmitt svo rosalega frjálslyndur og svo rosalega hlynntur frelsi einstaklingsins að hann kærði sjávarútvegsráðherra fyrir meiðyrði. Það kalla ég að standa vörð um málfrelsið!

Svo er Magnús líka óþreytandi að útskýra fyrir okkur kosningaúrslitin. Hann sagði okkur t.d. að úrslit kosninganna sýndu að íslendingar vildu ekki hafa ríkisstjórnina áfram, þrátt fyrir að hún fengi 5 manna meirihluta á alþingi og ekki væri hægt að mynda aðra stjórn án þess að annarhvort flokkurinn sem í henni eru væru með.

Nú það nýjasta hjá Magnúsi er að hann veit af hverju sitjandi ríkisstjórn vann kosningarnar(þótt hann hafi nú reyndar líst því yfir að hún hafi ekki gert það hérna einu sinni). Það er af því að hún lofaði jarðgöngum fyrir norðan og línuívilnun fyrir vestan. Og nú segir hann að ríkisstjórnin sé búinn að svíkja þetta, þrátt fyrir að gönginn verði væntanlega opnuð áður en kjörtímabilið rennur út og ekki sé hægt að framkvæma línuívilnum fyrr en alþingi kemur saman.

Já við erum svo sannarlega heppinn.

mánudagur, ágúst 11, 2003

Yeah

"A family full of midgets is not a family, it's a gang!"

"How is he? He's dead, can't you hear the music?"


I´m gonna git you sucka! Snilldarmynd

sunnudagur, ágúst 10, 2003

Drasl

Af hverju er aldrei neitt gott í sjónvarpinu á sunnudögum? Mér finnst að besta dagskráin eigi að vera á sunnudögum en ekki föstudögum og laugardögum. Á sunnudögum er maður þreyttur og vill slappa af og svona. En neeeeeiiiiiiiii þá er hjartsláttur og eikkað álíka skemmtilegt í sjónvarpinu. Leiðinda væl og röfl.

laugardagur, ágúst 09, 2003

Fréttir

Lesendur frétta.com hafa sennilega séð það sem ég ætla að fjalla um núna.

Þannig er það að maður hefur oft heyrt eigendur norðurljósa og starfsmenn fréttastofu þeirra hreykja sér af því að aldrei hafi eigendur haft áhrif á hvaða fréttir færu í loftið. Jafn oft hefur þetta verið kallað kjaftæði.

Nú geta norðurljósamenn ekki haldið þessu fram aftur. Í fréttayfirliti á bylgjunni í gær var talað um veiðiferð sem Geir h. haarde fór í í boði kaupþings-búnaðarbanka. Þegar kom svo að sjálfum fréttatíma stöðvar 2 í gær var þessi frétt ekki með og henni var líka sleppt í kvöld. Þetta gerðist eftir að eigendur norðurljósa skipuðu karli garðarsyni fréttastjóra að setja fréttina ekki í loftið.

Norðurljós skulda eins og margir vita kaupþingi-búnaðarbanka miklar fjárhæðir. Geiri H. Haarde fannst þetta sjálfum ekki vera meira mál en það að hann veitti stöð 2 viðtal sem átti að fara í loftið en gerði það auðvitað ekki.

Það er gaman að vita að óháð fréttaumfjöllun skuli vera í góðum málum hjá norðurljósum.

miðvikudagur, ágúst 06, 2003

Hvalavinir

Núna í þessum skrifuðu orðum standa hvalfriðunarsinnar fyrir utan íslenska sendiráðið í london og eru að mótmæla því að íslendingar ætla að hefja veiðar á hrefnum í vísindaskyni í þessum mánuði. Veiða á 38 hrefnur á næstu tveimur mánuðum.

Það að talið er að um 50.þús hrefnur séu á íslandsmiðum virðist ekki koma þessum íslandsvinum fyrir utan sendiráðið í london við. Það að nánast ekkert er vitað um áhrif þeirra á þorsk- ýsu- síldar- eða bara hvaða fiskistofna sem er á íslandsmiðum kemur þeim heldur ekkert við.
Nei þetta fólk, ekkert af því íslenskt, vill að við, íslendingar, högum okkar veiðum á okkar miðum eftir þeirra hagsmunum sem eru engir af því er ég best sé.

Það er oft sem ég verð pirraður yfir því sem ég sé í fréttum. Mér finnst oft fólk vera voðalega vitlaust.
En sjaldan verð ég jafn reiður og þegar hvalverndunarsinnar láta til sín taka. Þetta fólk sem virðist hafa ákveðið að hvalir séu heilögustu skepnur jarðar, eigi meiri rétt til lífs heldur en við hin, fara svo innilega í mínar allra fínustu taugar að ég get varla hugsað til þeirra án þess að það springi æð í höfðinu á mér.

Þvílíkur einstrengingsháttur!! Þetta fólk bara ósköp einfaldlega NEITAR að viðurkenna að hrefnur eru ekki í útrýmingarhættu.

Eyjaferð-Fimmtudagur
Jæja þá er komið að því.

Ég fór og pikkaði hann Friðvin upp klukkan fjegur og sótti svo beldur og við fórum og versluðum. Náðum svo í Ívar og keyrðum hann til hjartar og lögðum af
stað.
Leiðin til þórshafnar gekk áfallalaust fyrir sig nema þegar fíflin sem voru fyrir framan hjört hentu hálffullri bjórdós útúr bílnum sínum sem fór undir hjartar bíl og skall á mínum. Hjörtur tók sig auðvitað til og rauk fram úr honum, eins og ég reyndar líka en hann slengdi sér svo fyrir framan hann og negldi niður og hræddi þar með lífftóruna úr greyið stelpunni sem var að keyra. Ég aftur á móti tók pirringinn út með því að keyra þennan 10 mínútna kafla sem var eftir á rétt rúmlega 3 mínútum.

Svo var komið í skipið og á leiðinni ákvað sonja það strax að verða sjóveik. Hjörtur vildi nottla ekki láta kærustuna sína vera eina í þessu svo að hann varð bara sjóveikur líka og gerði það svo vel að menn muna varla eftir öðru eins í herjólfi. Við hin vorum flest frekar hress bara nema ég varð drullusyfjaður af sjóveikitöflunni og mókti mest alla leiðina.

Svo þegar við mættum til eyja þá tók harpa á móti okkur á höbbninni og týndist með baldri á meðan við vorum að ná dótinu úr gámnum. Þrátt fyrir góða tilraun einhverrar leiðindap*ku þá tókst henni ekki að stela svefnpokanum mínum. Ég hefði reyndar bara boðið henni að deila honum með mér ef ekki hefði verið fyrir það að ég hef séð sætari hluti en hana í klósettskálum. Við komumst s.s. ósködduð og með allt í herjólfsdal og settum upp grunnbúðir. Í þeim
voru: Ég, fiffi og baldur í baldurs tjaldi. Harpa vinkona sonju í sínu tjaldi. Hjörtur og sonja saman í tjaldi. Ívars tjald autt. Karó, Ívar og ásdís í stelpnana tjaldi og svo eitthvað fólk sem ívar þekkti í 3 tjöldum. Þetta fólk hékk saman mest alla helgina og hún harpa okkar og birkir og berglind voru líka með okkur.

Fljótlega eftir að við komum í dalinn urðum við baldur og fiffi svangir og plötuðum smá bjór og smá hörpu með okkur í sjoppu. Fékk mér borgara og byrjaði svo að drekka(sko mig, passa að drekka ekki á tóman maga!!) þegar við röltum aftur í dalinn. Þá var kominn tími til að fara á húkkaraballið. Eða sko semsagt fara fyrir utan húkkaraballið. Ég leit örlítið inn í salinn og ég held að Magni og félagar í á móti svörtum hanska hafi veri að spila fyrir svona 6 manneskjur. En svona er þetta víst alltaf, allir fyrir utan ballið. Það var hægt að kaupa dýrindispizzur þarna fyrir utan og þessi haugur af bjór sem ég hafði með var vel nýttur.

Nú skal ég segja ykkur frá bakpoka dauðans. Þannig var það að þeir sem keyptu miða í forsölu á essó gátu fengið forláta bakpoka með á skít og kanil og hann fiffi var svo sniðugur að nýta sér þetta. Það voru 2 stór hólf í þessum bakpoka, annað með þessu líka fína pikknikk dóti(dúkur og allt!) og hitt einangrað og þar var geymt ógrynni af áfengi þessa helgi. Þessi bakpoki á sér vísan stað í mínu hjarta eftir helgina.

En þegar við vorum búnir að hanga fyrir utan ballið í 2 tíma þá var okkur hirti og fiffa nóg boðið og við héldum þreyttir en glaðir heim í tjald.
Leti

Ég er ennþá þreyttur eftir ferðina um helgina þannig að þið fáið ekki almennilega frásögn af því helsta sem gerðist fyrr en á morgun eftir vinnu.
Þar mun ég segja ykkur frá lundaáti og hegðun lunda, sóðabrókinni, bakpoka dauðans með fyndustu smokkum helgarinnar, pizzum, kjúklingaborgara, bbqsósu-ostastykja-kjötkrydds-pylsunni, vanhelgum á klósettum, drykkju og bara allskonar skemmtilegheitum.

þriðjudagur, ágúst 05, 2003

Já halló

Ég var semsagt í eyjum um helgina. Mikið fjör, mikið gaman. Mikið djammað.
Engin Árni. Róbert Marshall fór á kostum í staðinn. Árni sendi bréf sem hann hefði betur sleppt og uppskar baul að launum. Reyndar gat ég ekki baulað allan tímann því hluti af bréfinu var eiginlega bara endalaust fyndinn.

En greyið maðurinn kann ekki að skammast sín og virðist ekki átta sig á því að maður aflar sér ekki vinsælda með því að reyna að koma sínum sökum
yfir á aðra.

Hitti mikið af fólki í eyjunum. Samt ekki þessa en hún var víst þarna einhversstaðar líka.