fimmtudagur, október 30, 2003
Já hérna ef þið kíkið í forumdótið mitt þá er þar gáta frá engum öðrum en Hirti. Hún er bara nokkuð góð hjá honum meira að segja.
miðvikudagur, október 29, 2003
Ætli einhver hafi pælt í sálrænum áhrifum sem svona kragadót sem er sett utan um hálsinn á köttum og hundum hefur á greyið dýrin?
Ég meina þetta virkar eins og gjallarhorn!!!
Ég persónulega færi allavega á taugum ef öll hljóð sem ég heyrði myndu magnast upp margfalt!

Skrýtið þegar maður er búinn að vinna að einhverju lengi, leggja alla orku sína í eitthvað, vanda sig og einbeita sér og hugsa ekki um neitt annað í lengri tíma. Allan tíman hugsandi um ánægjuna sem útkoma á eftir að veita manni ef maður bara leggur sig nógu mikið fram og gerir sitt allra besta og meira en það.
Svo þegar takmarkinu er náð þá fyllist maður ánægju með úrkomuna og getur verið stoltur af því sem maður hefur afrekað og skammast sín ekki fyrir að sýna öðrum uppskeru erfiðis síns.
Svo fær maður eftir smá tíma svona svolítið sérstaka tilfinningu, svona einhvernvegin tómleikatilfinningu svona ,,So. Now what?" fíling.
Jæja ég þvæ bara aðra vél á morgun.

Jæja þá er minns bara kominn með vinnu. Og haldið ykkur nú. Ég er að fara að vinna í HAGKAUP!
Reyndar ekki smáralindinni, heldur kringlunni þannig að ég verð að vinna á sama stað og litli bró.
Hann hafði nú einhver áhrif á það að ég fengi vinnu ásamt því sennilega að ég þekki svæðisstjórann sem ég verð að vinna undir frá fyrri tíð þegar ég vann með henni í smáratorginu.
Þannig að brátt fara peningarnir að flæða um allt eins og unaðslegasta djöflahunang.
Já ég ætla aftur að spyrja hvort einhver eigi cm3 01-02?

þriðjudagur, október 28, 2003
Djöfull hef ég ekkert að gera í þessum eyðum mínum, búinn að vera að lesa á fullu en bara nenni því ekki lengur. Svo er minns alveg hrottalega svangur orðinn, spurning um að fara að tékka á sætu gellunni í sjoppunni okkar. Ég er bara ekkert frá því að hún drífi meðalsætustandardinn hjá starfsfólkinu hérna í skólanum alveg nokkuð langt upp sko.
En allavega.
Á einhver cm3 01-02 sem hann getur skrifað fyrir mig, diskurinn minn er skemmdur:(
Annars fer nú að líða að því að CM4 fyrir þetta tímabil komi út, maður verður að skella sér á hann held ég, búið að laga einhverja bögga sem voru í leiknum í fyrra.
Muniði eftir þjóðarsálinni gömlu? Þegar öryrkjar allra landa og kverúlantar fleiri hringdu inn umvörpum og besserwisseruðust út í óendanleikann um allt og ekkert. Ég er búinn að komast að því hvar þetta fólk heldur sig í dag. Á málefnunum.com. Þvílíka vælið og röflið sem flýtur þarna um í bland við dónaskap og andstyggilegheit. Og fyrir svo utan mikilmennskubrjálæðið í þessu fólki. Það telur sig bestu birtingarmynd fjórða valdsins á Íslandi í dag og trúir því í raun að yfirvöld bæði pólitísk og önnur hreinlega skjálfi á beinunum yfir því sem þau eru að skrifa.
Málið er að meirihlutinn af þessu fólki eru biturir kverúlantar sem hafa þarna fundið leið til að sameinast í nöldrinu á milli þess sem þú kjassa hvort annað og hrósa hvort öðru fyrir ruglið.
Bahhhh þið eruð öll dæmd til þess að verða meðaljónar og plebbar fram í það óendanlega!! Eins og einn snillingurinn þarna sem skilgreinir sig sem 'byltingarsinnaðan anarkista' en er svo sósíalískur að það hálfa væri nóg, fyrir auðvitað utan það að hann getur varla verið mjög byltingarsinnaður miðað við það að hann gerir ekki neitt nema að sitja fyrir framan tölvu og væla undan auðvaldinu.
Voðalega er maður eitthvað pirraður í dag.

Jájá þau tíðindi voru að berast að Gettu Betur lið MS verður eingöngu skipað nýliðum(eins og reyndar lið MK). Einn eða réttara sagt ein af þeim sem voru í liðinu hjá þeim í fyrra er áfram í skólanum en í stað þess að nýta sér reynslu hennar þá voru teknir inn þrír nýir strákar. Nú er s.s. ekkert hægt að kvarta yfir því að hún hafi verið látin fara í forval EN mín skoðun er sú að þar sem hún hefur reynslu og það góða reynslu þá hefði frekar átt að halda henni og taka inn tvo nýja.
Málið er að í keppnum sem þessum skiptir "greindin" eða "þekkingin" eða hvað þið viljið kalla það auðvitað miklu máli en ekki öllu máli. Við í MK vorum eitt sinn með lið sem var gríðarlega sterkt 'þekkingarlega' séð en þegar kom í keppni fóru þeir á taugum og tveir af þeim frusu en sá þriðji varð strekktur.
Næstu tvö ár á eftir var annar af þeim sem frusu áfram í liðinu og þá var allt annað upp á teningnum.
En jæja, við svosem græðum á þessu líka.

mánudagur, október 27, 2003
"Ég átti þess aftur ekki kost að setja inn gátu í dag."
Án efa ein ljótasta setning sem ég hef skrifað lengi!

Halló. Ég átti þess aftur ekki kost að setja inn gátu í dag. Ég þarf eiginlega að fara að endurskoða þetta allt saman, en þegar ég verð byrjaður á fullu í gettu betur undirbúningi þá tryllist auðvitað allt hérna.
Já uhh getið þið sagt mér eitt, koma linkarnir mínir inn hjá ykkur? Þeir koma bara öðru hverju hjá mér.
Og já fyrir okkur nördana þá er loksins komið að því er virðist endanlegt grænt ljós á alvöru bíómynd eftir Hitchhikers Guide!! Meðal þeirra sem koma að henni er fyrirtækið Spyglass.
Mjög líklega leikstýra snillingarnir Hammer & Tongs myndinni, en þeir hafa t.d. gert myndband við lagið "Right here, right now" með Norman Cook(fatboy slim fyrir fíflin).

Við þá sem spyrja hvað það að vera starkaður þýðir þá segi ég bara: það er mjög starkað að spyrja svona spurninga!
laugardagur, október 25, 2003
Og af hverju er nafnið Starkaður leyfilegt? Þetta er ekki nafn! Þetta hljómar frekar eins og lýsingarorð
"Rosalega er ég starkaður í dag"
"Rosalega er ég starkaður í dag"
Það hefur borið á því að ég er hættur að vera fyndinn seinustu vikur. Þetta finnst mér ágætt því hlæjandi fífl fara í taugarnar á mér.
Ég hugsa að um áramótin, þegar maður fer að hugsa til baka og rifja upp atburði liðinns árs, þá muni einn hlutur standa uppúr. Ekki samt kosningarnar, eða öryrkjadómurinn eða landsliðið í fótbolta. Nei ég hugsa að það mundi standa uppúr að Pétur Blöndal dansaði með Íslenska dansflokknum.
Mannanafnanefnd leyfði nokkur fáránleg nöfn í ár eins og Rjúpa og fleira rugl. Þessi nefnd er eitt dæmið um óþarfa forræðishyggju sem á ekkert erindi inn í samfélagið. Og það sem meira er þá eru þessir menn á launum við þennan besserwisseraskap. Lögin sem farið er eftir eru algjört bull. Þetta er eitt af því sem fólk á að fá að ákveða sjálft, ef fólk er nógu mikið fífl til að skýra börnin sín asnalegum nöfnum þá á ríkið ekki að skipta sér af því, þetta fólk tekur þá bara fíflaskapinn út í einhverju öðru í staðinn. Hér eru lögin sem farið er eftir:
- Bannað að hafa fleiri en þrjú nöfn
Skiptir þetta máli?
- Skylda til að gefa barni nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess. Ella ber að greiða dagsektir!
Dagsektir!!!!
- Bannað að hafa nafn sem tekur ekki íslenska eignarfallsendingu.
- Bannað að hafa nafn sem brýtur í bága við íslenskt málkerfi.
- Bannað að taka upp nýtt ættarnafn hér á landi.
Af hverju?
- Bannað að gefa stúlku karlmannsnafn
- Bannað að gefa dreng kvenmannsnafn
Þetta tvennt síðastnefnda brýtur sennilega gegn jafnréttisákvæðum stjórnarskrárinnar.
Og rúsínan í pysluendanum:
- „Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.“
OK ég var kallaður Egill spegill og margt fleira ljótt þegar ég var yngri, get ég kært mömmu og pabba til mannanafnanefndar?
Þessi nefnd leyfir nöfn eins og Aagot, Glóð, Úranus og Stefánný en leyfir ekki nafnið Sævarr!

fimmtudagur, október 23, 2003
Vííííííí
Þeir sem voru með mér í eyjum muna pottþétt eftir Rökkva, gaurnum sem kom og hélt okkur hlæjandi í fleiri klukkutíma. Hann Rökkvi er nottla einn af lágmenningar gaurunum
(ásamt m.a. Gauja Skáta).
Nú já s.s. Rökkvi tók þátt í fyndnasti maður íslands keppninni en komst ekki áfram frá sínu kvöldi. Honum fannst það eðlilega svolítið súrt og skrifaði um það á lágmenningu. Þá kom maður sem kallar sig Bjarni Töframaður og er víst kynnir í þessari keppni og byrjaði fyrst á því að vera með leiðindi við Rökkva en þegar Rökkvi fór að svara honum þá fannst honum ekki jafn fyndið. Hann sakaði Rökkva m.a. um að vera ófrumlegur.
Bjarni Töframaður sakaði einhvern um að vera ófrumlegur!!
Þeir sem þekkja mig vita sennilega af hverju ég gat ekki á mér setið með að svara þessu.
Hér er hluti af því sem ég sagði:
Hvenar hefur það hindrað keppendur í þessari keppni að vera með stolið efni? Veit ekki betur en að Sveinn Waage hafi unnið með nánast eingöngu stolið efni og Bjarni "töframaður" náði öðru sæti með akti sem var stolið nánast orðrétt frá David Williamson. Og ég á enn eftir að heyra Bjarna segja frumsaminn brandara sem ekki hefur floppað gjörsamlega. Þannig að öll rök um að hann hafi verið ófrumlegur eru veik þegar við tölum um þessa ágætu keppni.
Bjarni svaraði svona kostuglega:
LOL annar bitur tölvunörd.
Hættið nú þessu væli. Það er gaman að sjá einhvern sem þekkir David Williamson og hans ágætu verk. Ég hef hitt David og veit vel hvað ég á af hans ackti og hvað hann á. Ég er nokkuð vel þektur meðal erlendra töframanna. Og þyki ég mjög góður þar. Ég sá Tabathu aftur í síðustu viku og þá rokkaði hún feitt. Ég hef aldrei sagt að Rökvi væri ófyndinn, bara að hann gæti gert betur.
Dreki, þú virðist hinsvegar hafa afarlítið til málanna að leggja annað en eitthvað væl, sem gerir þig að hvað????? Put your money were your mouth is, ég skal koma þér í keppnina á næsta ári og þá geturu sannað þig.
Hvor okkar skyldi vera á hærri launum við að vera fyndin.... hmmmmmmm.
BINGO
Ég!
Já ég er sennilega jafn bitur og ég er mikið tölvunörd!
Bjarni talaði líka seinna í þessu svari um að Rökkvi þyrfti að geta tekið gagnrýni og fleira og Rökkvi svaraði og benti honum m.a. á að hann hefði nú ekki tekið minni gagnrýni beinlínis vel.
Þá kemur þessi ómælda snilld frá töframanninum:
Mjowwwwww hvæsss bara allt að verða brjálað.
Gangi ykkur bara vel í lífinu, látið biturleikan vaða yfir heiminn og sjáið hvort það virki fyrir ykkur. Fyrir mig held ég bara áfram að vera fyndinn, greinilega án ykkar blessunar.
Það er kannski ykkar aðferð að dissa alla í spað, en ég veit að það hefur ekki aflað ykkur miklum vinsældum meðal fagfólks í bransanum.
Ég tek gagnrýni vel, en gagnrýni sem skrifuð er í biturð er ekki alltaf rétt gagnrýni, heldur biturlegt comback til að reyna lifta sjálfum sér á eitthvert hærra plan.
Ég trúi því ekki að ég sé actualy að svara þessu. LOL!
Æ Æ ég hreinlega gat ekki haldið aftur af tárunum(þið megið giska á hvort það var af hlátri eða sorg). Bjarni bætti því líka við að hann myndi kannski hafa alla fyndnu vinina sína með sér og horfa á Rökkva í stúdentakjallaranum þar sem hann ætlar að uppistanda von bráðar.
Ég nottla bara gat ekki ekki svarað:
Bjarni nákvæmlega hvað ertu að meina? Ætlarðu að mæta á stúdentakjallarann með öllum fyndnu bransavinunum og hlæja að því hvað Rökkvi er lítill kall miðað við ykkur?
Þú kallinn minn tekur þátt í þessari umræðu á sama leveli og við og þú skalt ekki láta þér detta það í hug að þú sért yfir okkur hafinn, ummæli eins og þau að ég sé bitur tölvunörd dæma sig sjálf enda hefur þú engar forsendur fyrir ruglinu í þér.
Já þú færð sennilega meira borgað en ég fyrir að vera fyndinn en sennilega stafar það af því að þú ert jú í bransanum en ekki ég. En þú færð aftur á móti ekki borgað eftir því hversu fyndinn þú ert þannig að ég skil ekki alveg hvað það kemur málinu við.
Já þú s.s. hefur hitt herra Williamson? Fannst honum sniðugt að þú skulir hafa búið til svona gormadýr eins og hann er með? Og tekið nánast beint upp þýðingarar og staðfæringuna úr þættinum á stöð 2? Magnaður andskoti, fær hann stefgjöld?
Ekki misskilja mig, það er alveg hægt að hlæja að þér, þú ert mjög góður sögumaður og með góða sviðsframkomu. En frumlegur ertu ekki. Ég meina kommonn flautan í vatnsflöskunni? Bit-ið með apann og borðið í latínulaginu? Gastu ekki einu sinni breytt frasanum frá Izzard?
Bara til að koma því á hreint þá skiptir það mig engu máli hvort Rökkvi átti skilið að vinna eða ekki, en það að þú skulir segja að hann sé ekki frumlegur finnst mér fáránlegt.
Svo langar mig að biðja þig Bjarni um að lesa það sem skrifað var um Rökkva hér að ofan í kommentunum, var það uppbyggileg gagnrýni? Það þurfti að skrapa skítinn ofan af henni til að sjá hana.
ps. Mér gæti eiginlega ekki verið meira sama um mínar vinsælir innan "bransans" á Íslandi, það eru því miður bara örfáir innan hans sem ég virði.
Þessi maður, Bjarni töframaður hefur mér alltaf fundist hrikalega ófrumlegur og til að byrja með var hann gjörsamlega
laus við það að vera fyndinn að mínu mati. En hann hefur bætt hjá sér sviðsframkomuna og hann er fínasti sögumaður og það er alveg hægt að hlæja að honum, en þegar hann vænir aðra um að vera ekki frumlegir þá blöskrar mér
hreinlega!
Og þegar hann er með einhverjar meldingar um það að ég sé bitur lítill tölvukarl af því að ég VEIT að hann stelur ekki bara einum og einum brandara heldur heilu "öctunum" og að nú sé ég búinn að fá alla bransavinina hans upp á mót
þá veit maður ekki hvað maðurinn er eiginlega að hugsa? Var hann á einhverju hærra leveli heldur en ég og Rökkvi? Nei það var hann ekki.
Held að hann ætti bara að halda sig við jójó-ið, hann var jú íslandsmeistari í því í fyrra jó-jó æðinu!

miðvikudagur, október 22, 2003
Kominn er fram gagnrýni á seinustu gátu. Teitur var fyrst eitthvað að vandræðast með ártölin og segir svo að það sé ekki rétt að Keltar hafi hersetið Róm. Heimild mín er bók sem heitir Heimslist Heimalist og í henni stendur ,,...heldur hersátu þeir einnig Rómarborg".
Nú má svosem alveg fara út í þrugl um merkingarfræði orðsins hersetu en ég bara nenni því ekki.
Næsta gáta.
Fraud skipti 'sálarlífinu' upp í þrjá hluta, hvað kallast þeir?

I have a dirty little secret. Ég hin gífurlega alvarlega þenkjandi tónlistarunnandi fíla girlband! Reyndar bara eitt ákveðið girlband. Nánar tiltekið Sugababes
En já samfylkingin eyddi 81 milljón í kosningabaráttuna. Ekkert um það að segja.
Fannst reyndar frekar fyndið að heyra þau kvarta yfir því að kostnaðurinn hafi verið svona hár af því að hinir flokkarnir vildu ekki sættast á einhverjar reglur um auglýsingar. Eins og það sé hinum að kenna að þau eyddu svona miklu.
Muse kannski að koma til íslands!!!!!!!
Frábærar fréttir, reyndar ekkert staðfest en það er engu að síður búið að panta laugardalshöll 11.des fyrir rokktónleika!

þriðjudagur, október 21, 2003
Er eitthvað voða andlaus þessa dagana, er ekki alveg upp á mitt besta. En jæja, fiffi slátraði gátunni í annari tilraun, þetta voru auðvitað keltar kjánarnir ykkar.
Já til að fylla upp í plássið þá kemur hérna einhver bull quiz

You are Form 3, Unicorn: The Innocent.
"And The Unicorn knew she wasn't meant to
go into the Dark Wood. Disregarding the advice
given to her by the spirits, Unicorn went
inside and bled silver blood.. For her
misdeed, the world knew evil."
Some examples of the Unicorn Form are Eve
(Christian) and Pandora (Greek).
The Unicorn is associated with the concept of
innocence, the number 3, and the element of
water.
Her sign is the twilight sun.
As a member of Form 3, you are a curious
individual. You are drawn to new things and
become fascinated with ideas you've never come
in contact with before. Some people may say
you are too nosey, but it's only because you
like getting to the bottom of things and
solving them. Unicorns are the best friends to
have because they are inquisitive.
Which Mythological Form Are You?
brought to you by Quizilla

mánudagur, október 20, 2003
Já hæ
fokkings fokkin fokketí fokk fokkkkkkk
en annars er allt í lagi
Já ég ætla að gefa ykkur fleiri vísbendingar við seinustu gátu í stað þess að koma með nýja.
Þessi menningarþjóð ríkti á sínu heimasvæði til 800-900 eftir kr.
Þjóðirnar sem hún myndar urðu svo hluti að stóru heimsveldi en hafa í dag að mestu náð sjálfstæði aftur.
Nú getur einhver þetta.

laugardagur, október 18, 2003
HAHAHAHAHA
Loksins kom það, gáta sem þið getið ekki.
Þið eruð á þvílíkum villigötum, eða sko Þú, það er bara einn að reyna að svara þessu, eða ok 2.
Snilldarmynin The Mask er á skjá 2, ég er með bjór og er að fara að djamma. Gæti það verið betra?

föstudagur, október 17, 2003
Bahhh búið að vera tölvuvesen, þurfti eikkað að og svo já og allt í klessu bara.
En já ég ætla að setja eina frekar þunga inn núna(gátu fyrir suma(Hjört)).
Ég spyr um menningarhóp/þjóðhóp.
Þeir ríktu í kringum 600 fyrir. kr. til 500 eftir krist. Þeir brutu undir sig mið-evrópu, allt frá svartahafi og vestur á spán og hersátu meira að segja Rómarborg um skeið. Enn þann dag í dag má sjá leifar af menningu þeirra útum alla evrópu.
Þeir fundu m.a. upp hestaskeifuna.

miðvikudagur, október 15, 2003
Gáta í seinna lagi.
Hvers son er böðullinn sem Jón Hreggviðsson er sakaður um að myrða í Íslandsklukkunni.

þriðjudagur, október 14, 2003
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Skjár 1 bauð RÚV Silfur Egils á móti Sex in the city og RÚV sagði nei!
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Án alls gríns þá skil ég ekki alveg þessa viðkvæmni gagnvart Agli Helgasyni, þetta voru fínir þætti hjá kallinum en það skal enginn segja mér að hann hafi verið óhlutdrægur! Maðurinn tók þátt í að stofna ákveðin stjórnmálaflokk hér á landi og hefur verið boðið(því þessi flokkur trúir svo einlægt á lýðræði að bara sumir þurfa að fara í prófkjör) að taka sæti á listum hans til ríkis og sveita. Ekki að það breyti því endilega hvort hann hafi verið hlutdrægur eða ekki en það fór bara lítið á milli mála seinustu mánuðina sem þátturinn var.
Það hvort að hann hafi verið hlutdrægur skiptir samt engu máli, hann hefur fullan rétt á því að vera með sinn þátt fyrir því(á sama hátt og ákveðnir aðilar hafa fullan rétt á að skrifa sínar bækur) og ég persónulega hefði frekar viljað hafa hann á Skjá einum áfram en þar sem manni skilst að þeir hafi bara ekki séð sér fært að hafa þáttinn áfram vegna kostnaðar að þá var það víst ekki hægt. Og því er hann komin á vonlausan tíma á Stöð 2 en sem betur fer þá verður þátturinn í opinni dagskrá.
En mér finnst samt fyndið að sjónvarpsstöðvar á íslandi vilji frekar þátt um vergjarnar gellur frá New York heldur Egil Helgason.

Ég finn hjá mér gríðalega þörf fyrir að tala um málvenjur fólks í sambandi við rassa og rassgöt.
Margir gera nákvæmlega engan greinarmun á þessum tveimur hlutum þegar þeir tala. Það kemur oft ótrúlega skemmtilega út.
"Sérðu rassgatið á manneskjunni maður!!"
Nei, buxurnar eru fyrir.
"Djöfull er þessi með stórt rassgat maður"
Og hvernig í andskotanum veist þú það?
Rassar eru mörgum hugleiknir og jaðrar jafnvel við áráttu hjá ákveðnu fólki. Rassar geta jafnvel orðið frægir, sbr. rassinn á Jennifer Lopez sem þykir víst vera einn af merkilegri rössum í heimi. Nákvæmlega hvað þessi rass hefur gert sér til frægðar hef ég aldrei náð en aftur á móti hefur hann orðið tilefni til margra hláturskasta hjá mér þegar orðfatlað fólk hefur talað um rassgatið á Jennifer Lopez og stærð þess, hlutir sem hafa algjörlega farið framhjá mér hafi þeir verið í
umræðunni.
Svo eru til margar tegundir af rössum, ein sú frægasta og auðþekkjanlegasta í dag er 'hamborgara'rassinn, einnig þekktur sem ´kana'rass. Hann á ættir sínar að rekja til bandaríkjanna, nánar tiltekið þess hluta íbúa bandaríkjanna sem er yfir kjörþyngd(á milli 60 og 70 % íbúana). Þessi er merkilegur fyrir þær sakir að þegar horft er á manneskju sem hefur hann á hlið þá skarar hann gríðarlega langt út og manneskjan líkist helst öfugu holdsveiku Þ-i með krippu.
Rassgöt eru aftur á móti mjög ómerkilegir hlutir að mínu mati. Þetta er í raun ekkert annað en gat sem skítur og gas vellur útum. Engin eru frægu rassgötin og hvað þá síður tegundirnar. Helst er að fólk grínist með rassgöt undir rós þegar rætt er um samkynhneigða karlmenn og kynlíf þeirra.

mánudagur, október 13, 2003
Hjörturinn sýndi mátt sinn og megin með því að svara einni af erfiðari 'gátum' sem hafa komið hingað til.
Að sjálfsögðu var það Descartes sem sagði okkur að hann hugsaði, þess vegna væri hann.
Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun mála

Snilld helgarinnar átti Geir Marteinsson sem lýsti leik Þýs-Ísl í sjónvarpinu. Þegar hann þuldi upp íslenska liðið kynnti hann m.a. til sögunnar aðalsóknarmann liðsins ARNÓR Guðjohnsen!
Þetta fer væntanlega í sögubækurnar sem eitt skemmtilegasta 'hnjask' sem komið hefur í beinni útsendingu hjá þul.
En mikið rosalega er það sárt þegar svona gerist. Það er nokkuð ljóst að hefði mark Hemma verið dæmt gilt, eins og það átti að vera, þá hefði þessi leikur farið allt öðru vísi. Mér fannst við vera miklu öruggari í seinni hálfleik fram að markinu og þetta lá í loftinu. En augnabliks einbeitingarleysi kostaði svo mark og eftir það þurftum við að treysta á Litháa.
Helvítis Litháar, gefa okkur aldrei stig í eurovision og geta svo ekki aulast til að halda hreinu á móti skotum.
Rússar eru þó þjóðaróvinir númer 2 núna, það kemst enginn yfir noreg, aldrei.

Ok það eru tyllidagar í gangi í skólanum þannig að ég gat ekki sett gátuna inn á réttum tíma.
en gátið er svohljóðandi:
hver sagði og hvað þýðir
Cogito ergo sum
en gátið er svohljóðandi:
hver sagði og hvað þýðir
Cogito ergo sum
föstudagur, október 10, 2003
Sumir(Hjörtur) vissu ekki svarið í gátunni í dag. Og þá urðu sumir(Hjörtur) fúlir og ákváðu að vera bara fyndnir. Svo þegar aðrir(Fiffi) svöruðu rétt og enn aðrir(Ég) sögðu að það væri rétt hjá öðrum(Fiffa) en ekki sumum(Hirti) þá fóru sumir(Hjörtur) í fýlu og fóru að væla undan því að þetta hefði ekki verið merkt sem 'Official Gáta'.
Ég vil benda sumum(Hirti) á að þessi gáta kom inn í hádeginu á föstudegi þannig að sumir(Hjörtur) geta bara sjálfum sér um kennt og hætta að væla.
Mig langar að benda Hirti(sumum) á að lesa reglurnar aftur.
Þessi póstur er í boði Sviga ehf.

Is Condi Gaslighting Rummy?: "And we know now that our first pre-emptive war was launched basically because Iraq had . . . a vial of Botox?
Just about the scariest thing the weapons hunter David Kay could come up with was a vial of live botulinum, hidden in the home of an Iraqi biological weapons scientist.
This has very dire implications for Beverly Hills and the East Side of Manhattan, areas awash in vials of Botox, the botulinum toxin that can either be turned into a deadly biological weapon or a pricey wrinkle smoother"
Enn einu sinni fer Maureen Dowd á kostum í pistli um málefni BNA í Írak. Mæli með að allir lesi þetta.

Ég rústaði gettu betur prófi sem ég var í í gær og allt bendir nú til þess að ég verði í liðinu.
Sagði formanni nefndarinnar sem sér um þetta í morgun að ég ætlaði að hugsa málið um helgina en hann sagði að þeir væru eiginlega búnir að ákveða að ég yrði með.
Gott að þurfa ekki að pæla í hlutunum sjálfur.
Kostirnir við að vera með eru:
Skemmtilegt
Fróðlegt
Eining
Frítt kók og pizzur
Tilslökun í mætingu
Gallar:
Tímafrekt
Stressandi

fimmtudagur, október 09, 2003
Ígabú!
Húbba húbba, systir hennar var að gefa mér link. Ef maður rennir músinni yfir linkinn þá koma svona leynd skilaboð þar sem stendur að ég sé hægri-sinnaður MK-ingur sem þekki systur hennar.
Ég er nú bara nokkuð ánægður með það. Finnst þetta líka soldið fyndið, maður getur lesið þetta þannig að það sé hálfmerkilegt að ég sé hægrisinnaður fyrst ég er í MK, en í sögulegu samhengi er það auðvitað skiljanlegt.
Æi ég er búinn að drekka of mikið kók í dag.
Finnst samt kúl að vera hálfkunningi, makes me feel half-special:D

miðvikudagur, október 08, 2003
Annars er allt skítsæmilegt. Yfirskrift seinustu daga hefur verið 'Same shit different day'
Ótrúlegt hvað maður lætur hluti sem eiga ekki að skipta máli fara í taugarnar á sér. Sérstaklega þegar þessir hlutir eru í raun bara að sína manni hvernig hlutirnir í raun eru.
Seinustu daga hefur mér líka oftar en einu sinni dottið í hug Calvin&Hobbes comic sem ég á einhversstaðar á tölvunni
minni.
Þeir félagar koma að dauðum fugli og fara að hugsa um tilgang lífsins og hvað lífið sé brothætt og hvernig maður eigi að bregðast við því sem að höndum ber.
Þeir enda á því að sammælast um að sennilega skilji maður þetta betur þegar maður verður fullorðinn.
Þannig hélt ég líka að þetta væri. Þegar ég yrði eldri þá yrðu hlutirnir einfaldari, skýrari og minni átök einhvern veginn.
Það virðist alls ekki vera þannig, eini munurinn á tvítugu fólki og 2 ára fólki er að hlutirnir sem eru einfaldir fyrir 2 ára krakka, ást, skemmtun lífsfylling og fleira reynist okkur eldra fólkinu oft erfiðir, og þeir hlutir sem eru einfaldir fyrir okkur eru erfiðir fyrir þessa krakka.
Við semsagt þroskumst upp úr vandamálum ákveðinna tímaskeiða yfir í ný vandamál.
Æi sennilega er þetta samt bara tímabundin svartsýni hjá mér. Venjulega endast þessi köst ekki lengi, eitthvað gott kemur alltaf öðru hverju, finnst eiginlega vera kominn tími á mig núna.

Friðvin vann aftur. Svarið var auðvitað Fóbos og Deimos eða ótti og skelfing.
Einhver rosalega sniðugur svaraði í kommentakerfið undir nafninu Bóbó. Sko þetta er örugglega rosalega sniðugt og fyndið hjá þér en þar sem ég veit ekki hver þú ert þá get ég ekki gefið þér stig. Það að ég skuli nota nikkið drekinn hefur ekkert með það að gera. Og já ég er bjáni, það hefur komið fram á þessari síðu margoft.
Staðan:
Fiffi 7
Katla 3
Natti 1
Rest 0

Jæja, ætli maður setji þá ekki inn gátu.
Um reikistjörnuna mars ganga tvö tungl, hvað heita þau og hvað þýða nöfnin?

Hmmm ég kemst ekki inn á síðuna mína en ég kemst inn á blogger síðuna?!
Meira ruglið. Þessi Border Manager sem dó í seinustu viku hefur greinilega skipt svona rosalega miklu máli.

þriðjudagur, október 07, 2003
Vei ég held að ég sé að verða veikur, en gaman.
Fyrsta gátan í nýrri syrpu kemur á morgun ef andlegt og líkamlegt ástand mitt og tölvukerfisins í MK leyfir.
2 próf á föstudaginn, jei.

mánudagur, október 06, 2003
Ég er stundum svo skýr að fólk fær ofbirtu í augun í margra kílómetra radíus í kringum mig.
Ég átti svoleiðis móment í dag. Ég var að skoða heimasíðu nemendafélagsins í MK.
Þar er gluggi þar sem maður getur séð afmælisbörn dagsins meðal nemenda skólans. Ég rak augun í það að bæði afmælisbörnin báru sama eftirnafn. hehe sniðugt hugsaði ég með mér og ætlaði að kíkja á myndirnar af þeim. Neinei þeir mættu ekki til myndatöku þannig að engin var myndinn.
Ég þakka fyrir það að ég gekk ekki um allan skóla talandi um hvað þetta væri merkileg tilviljun því um það bil sem ég er að fara úr skólanum sé ég ástæðuna fyrir þessari merkilegu tilviljun, þetta eru jú eineggja tvíburar. Og það sem meira er þá er ég með öðrum þeirra í íslensku. Ég held að ég hafi verið að vinna með honum líka en ég bara er ekki viss, gæti hafa verið hinn.
Ég fór reyndar að pæla að það hefði verið hægt að spara nemendafélaginu heila mynd(ef þeir þá hefðu ákveðið að láta taka mynd af sér) með því að taka bara mynd af öðrum þeirra og nota fyrir báða.
Af hverju halda allir fyrir augun nálægt mér?

æi já þarna reglurnar
ok
Gáta kemur þrisvar í viku, í hádeginu á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Þetta er þó háð netsambandi upp í mk og andlegu og líkamlegu ástandi mínu.
Eitt stig fyrir rétt svar nema annað sé tekið fram.
Svarað skal í comment nema annað sé tekið fram.
Skál fyrir steina

Ég fer í taugarnar á sumum. Mér finnst það fínt. Það að ég fari í taugarnar á einhverjum þýðir að ég allavega hef áhrif á einhvern. Flestir sem ég veit um sem ég fer í taugarnar á eru þannig fólk að ég er í raun ánægður með að ég fer í taugarnar á því, finnst það merki um að ég sé að gera eitthvað rétt.
Það sem fer þó í taugarnar á mér er þegar fólk sem ég þekki, fólk sem þekkir mig og veit hvernig ég er, lætur hina, þá sem ég fer í taugarnar á, hafa áhrif á sig. Ég skil ekki svoleiðis. Svoleiðis er asnalegt. Það fer líka í taugarnar á mér þegar fólk sem ég þekki og tel til vina minna getur ekki komið hreint út og sagt mér ef eitthvað er að.
Svona er ég skrýtinn!
Já og bara til að undirstrika það einu sinni enn þá er Bedda stóra systir svanýar sem við MK-ingar þekkjum og dáum.(hún var einmitt að tala um að ég ætti að merkja beddu sem systir hennar í linkunum áðan, en ég nenni því ekki:)

Lucy I'm home!
Lucy?
Lucy?!?
Oh no, you've been murdered in cold blood!
Now who will make my dinner?
Þetta var mánudagsgeðveikin í boði Hlölla og kóka kóla(þarf að redda alvöru sponsorum)
Eníhú þá er ég ennþá að vinna í reglum og tímatöflu fyrir "Gátuna". Þetta er alveg að koma.
Helgin var fín, ég drakk bjór og borðaði og fór næstum því niður í bæ og allt að gerast bara.

föstudagur, október 03, 2003
Jájá
Netið loksins komið upp aftur í skólanum, það datt út í hádeginu í gær útaf því að einhver maður að nafni Border Manager dó og netið hefur legið niðri, sennilega harmi slegið yfir þessum óvænta dauðdaga manns sem var víst góður vinur þess.
Jújú ég fíla Káta Pilta ennþá, ég var bara að djóka í gær.
Ég er annars í ritgerðarvinnu, er að vinna að ritgerð úr íslandsklukkunni(skemmtileg tilviljun) og er að skrifa um baráttu Jóns Hreggviðsonar við réttlætið og ranglætið.
Er að hugsa um að raka mig á eftir og fara svo og láta snoða mig á morgun, ég er orðinn all hrikalega loðinn um hausinn, pabba finnst ég helst líkjast ígulkeri á morgnana þegar ég vakna úfinn og sætur.
Og jú víst eru ígulker sæt!

fimmtudagur, október 02, 2003
Ég er búinn að vera að pæla og ég ætla að skipuleggja betur gátukeppnina. Setja fasta tíma á gátur og svona eitthvað. Planið verður fullklárað á morgun.
Annars brá mér svolítið í dag, ég er víst í ritstjórn haegri.is! Who knew? Er reyndar bara titlaður 'penni' en það er þó eitthvað, fjölmiðlaferillinn hafinn.
Talandi um fjölmiðlaferil þá er ég skráður á spjallið á vef Blaðamannafélags Íslands.
Þar eru oft skemtilegar umræður um fjölmiðla og störf þeirra. Það hefur verið þar smá umræða um Laxnesdeiluna. Ég ákvað að koma með eitt innlegg þar sem ég spurði fréttamennina hvernig þeir brygðust við ef þetta væru heimildir í frétt og þeir væru í sporum Hannesar, að fá ekki að nota heimildir sem þeir væru búnir að skoða vegna skoðanna sinna en aðrir fengju að nota þær.
Mér kom skemmtilega á óvart að ekki minni menn en Sigmar í kastljósinu og kyntröllið Logi Bergmann Eiðsson sögðu að þetta væri kjarninn í umræðunni. Fínasta egóbúst það! Þokaði mér allavega eitt skref nær því að ákveða að fara í fjölmiðlun þegar ég klára stúdentinn.
En það kom mér leiðinlega á óvart að lesa það sem Jakob Bjarnar hafði um þetta að segja. Hann talaði að sakleysingjum rataðist oft góðir hlutir á munn þegar á þyrfti að halda fyrir valdhafa, eða þannig skyldi ég það. Svo fór hann að tala um að hann skyldi ekki hvernig það væri hægt að verja það að GH hafi verið 'rekinn' frá gljúfrasteini og ráðningu Völu Kára.
Það kom mér frekar á óvart þar sem ég hafði ekki minnst einu orði á þá hluti og skoðanir mínar á þeim, alltaf fyndið þegar fólk gerir mann upp skoðanir.
Allavega þá fíla ég ekki Káta Pilta núna og mun aldrei kaupa best of disk með þeim ef hann kemur út.

miðvikudagur, október 01, 2003
Ég ákvað að taka út póstana um þetta Heimdallarmál. Held að það sé best að vera ekkert að taka afstöðu eða tjá sig um þetta fyrr en öll kurl eru kominn til grafar.
Það er samt eitthvað við það að smala 1200 manns inn í 4000 manna félag rétt fyrir kosningar sem er hálf skrýtið. Og líka það að gefast upp þegar þessir 1200 manns fá ekki að ganga undireins í félagið.

En já hann fiffi tók afgerandi forystu í "Gátunni" með því að svara allri seinustu spurningu rétt, og það sem meira er hann vissi hvernig báðir forsætisráðherrarnir sem hættu...ehh...hættu. En ég fór allt í einu að pæla að það er kannski frekar fúlt fyrir hina keppinautana(lesist Kötlu, allavega eins og staðan er í dag) að hann fái einhvern helling af stigum. En ég lofaði einu stigi fyrir hvern ráðherra og stend við það.
En ég ætla að sleppa aukastigunum í bili, sorry fiffi minn.
Staðan er þá:
Fiffi 6
Katla 3
Natti 1
Allar þekktar lífverur aðrar 0
Næsta gáta kemur von bráðar

Það er að venju marg skemmtilegt í fréttablaðinu í dag. T.d. er pistill eftir framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar Karl Th. Birgison sem heitir "Ítalía brennur".
Í pistlinum fjallar Karl um aðstæður við Kárahnjúkavirkjun sem vissulega eru slæmar og vonandi taka íslensk stjórnvöld sig saman í andlitinu og sýna Impreglio að það sé ekki jafn auðvelt að brjóta á mannréttindum á íslandi og það er í afríku.
Karl talar um undirlægjuhátt og aumingjaskap stjórnarflokkana, aðallega reyndar framsóknarflokks, og hvað þeir séu nú miklar kveifar.
Skrýtið man einhver hvaða afstöðu Samfylkingin hafði til virkjunarinnar? Ég væri ekki hissa ef flestir segðu nei því hún kom aldrei greinilega fram, jú kannski þegar verðandi varaformaður(og seinna formaður) flokksins sem Kalli er framkvæmdastjóri hjá keyrði í gegn samþykki Reykjavíkurborgar á sínum tíma.
Ég get alveg unað fólki að mótmæla hlutum en mér finnst alltaf betra ef fólk gerir það á réttum forsendum og reyni
ekki að klína út aðra þegar menn eru sjálfir útbíaðir sama skít.