Abraham Lincoln var kjörinn á þing 1846.
John F. Kennedy var kjörinn á þing 1946.
Abraham Lincoln var kjörinn forseti 1860.
John F. Kennedy var kjörinn forseti 1960.
Lincoln og Kennedy eru bæði 7 stafa nöfn.
Báðar konur þeirra misstu börnin sín meðan þau bjuggu í Hvíta húsinu.
Báðir voru skotnir á Föstudegi.
Báðir voru skotnir í höfuðið.
Einkaritari Lincoln hét Kennedy.
Einkaritari Kennedy hét Lincoln.
Báðir voru myrtir af suðurríkjamanni.
Suðurríkjamaður tók við af þeim báðum.
Báðir sem tóku við hétu Johnson.
Andrew Johnson, sem tók við af Lincoln, var fæddur1808.
Lyndon Johnson, sem tók við af Kennedy, var fæddur 1908.
John Wilkes Booth, sem myrti Lincoln, var fæddur 1839.
Lee Harvey Oswald, sem myrti Kennedy, var fæddur 1939.
Báðir morðingjarnir voru alltaf kallaðir sínum fullu nöfnum.
Nöfn þeirra beggja eru 15 stafir.
Lincoln var skotinn í "Kennedy" leikhúsinu.
Kennedy var skotinn í "Lincoln" bifreið.
Booth flúði úr leikhúsinu og fannst í vöruhúsi.
Oswald flúði úr vöruhúsinu og fannst í leikhúsi.
Booth og Oswald voru báðir myrtir áður en þeir voru dæmdir.
Þetta væri alveg ótrúlegt ef þetta væri nú bara allt saman rétt. Kíkjum aðeins betur á þetta.
"Abraham Lincoln var kjörinn á þing 1846.
John F. Kennedy var kjörinn á þing 1946."
Lincoln varð öldungardeildarþingmaður 1846 en JFK varð það 1953.
"Einkaritari Lincoln hét Kennedy.
Einkaritari Kennedy hét Lincoln. "
Kennedy var vissulega með einkaritara sem hét Lincoln en einkaritarar Lincoln hétu Nicolay og Hay.
"John Wilkes Booth, sem myrti Lincoln, var fæddur 1839.
Lee Harvey Oswald, sem myrti Kennedy, var fæddur 1939. "
Booth fæddist 1938.
"
Lincoln var skotinn í "Kennedy" leikhúsinu.
Kennedy var skotinn í "Lincoln" bifreið"
Lincoln var skotinn í Ford's leikhúsinu.
"Booth flúði úr leikhúsinu og fannst í vöruhúsi.
Oswald flúði úr vöruhúsinu og fannst í leikhúsi. "
Lincoln var skotinn 14. apríl en Booth náðist ekki fyrr en 26. apríl í tóbakshlöðu.
"Booth og Oswald voru báðir myrtir áður en þeir voru dæmdir. "
Það er mjög hæpið að segja að Booth hafi verið myrtur, hann lést af völdum skotsárs sem hann fékk í umsátri um tóbakshlöðuna.
Boðskaður þessa pistils er að þótt að svona hlutir hljómi oft vel og spennandi þá eru þeir oftast bull.
