laugardagur, nóvember 27, 2004

Ég ætla aðeins að röfla um færsluna frá því í gær. Hún var skrifuð undir áhrifum bjórs og þreytu.

Orðið forsjárhyggjumenn fór greinilega fyrir brjóstið á Hjalta.
Með því átti ég við þá sem eru á móti því að álögur á áfengi verði lækkaðar og að sala áfengis í matvöruverslunum og öðrum búðum verði leyft vegna þess að þeir telja að með því aukum við á ofneyslu áfengis og greiðum leið unglinga að áfengi.

Þetta lýsir að mínu mati því að fólk treystir ekki öðru fólki til þess að hafa stjórn á sér.

Hvað varðar skoðun mína á alkahólisma þá tók ég ekki eftir því að ég hafi látið hana í ljós.

föstudagur, nóvember 26, 2004

Eitt skil ég ekki.

Margir forsjárhyggjumenn vilja ekki sjá að verð á áfengi lækki eða að ríkið missi sinn einkarétt á því að selja áfengi af því að þeir telja að með því aukum við á ofneyslu áfengis.
Vogur skilgreinir alkahólisma sem sjúkdóm(reyndar aðeins flóknara en það en samt). Flestir forsjárhyggjumenn sem ég hef talað við eru voða Hrifnir af Tóta Tyrfings og hans starfi.

Ef að við skilgreinum alkahólista sem sjúklinga, af hverju trúum við því þá að þeir eigi eitthvað síður eftir að misnota áfengi ef að ríkið ofurskattar það eða hefur einkarétt á því?

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Ég sat inni í stofu í gær og öskraði af lífs og sálarkröftum: "ACCIO BJÓÓÓÓR, AAAACIIIIOOOO BJÓÓÓÓÓÓR!!!!"

Ekkert gerðist.

Af því get ég dregið aðra af þessum tveimur ályktunum:
1. Ég er skvibbi(galdramaður sem getur ekki galdrað).
2. Ég er búin að lesa of mikið af Harry Potter.
Þarf manni að vera illa við einhvern þótt maður sé ekki sammála honum?

Ágætur félagi minn sem er í Vinstri-Grænum hafði þetta að segja um unga sjálfstæðismenn á vefsíðu einni:
"SUS og Heimdallur er samansafn af uppum með silfurskeið í rassgatinu."

Ekki nóg með það að ég falli inn í þennan hóp heldur fellur yngri bróðir þessa sama ágæta drengs inn í þennan hóp líka. Þannig að hann hefur væntanlega sjálfur ekki sloppið við silfurskeiðina.

Þetta er ekkert einsdæmi. Hvað eftir annað verður maður vitni að því að fólk viðhefur stór orð um hópa eða einstaklinga af þeirri einni ástæðu að því er virðist að það er ekki sammála skoðunum eða orðum þeirra. Ég hef staðið sjálfan mig að þessu, þótt að ég almennt reyni að forðast þetta, bæði með því að dæma ekki hópa eftir einstaklingum og því að stilla almennt stóru orðunum í hóf.

Ég þekki fólk úr bæði UVG og Ungum jafnaðarmönnum sem mér er ákaflega vel við, alveg eins og ég þekki fólk í SUS sem mér finnst ekkert sérstakt. Þannig er það bara. Ég get alveg verið ósammála þessu fólki og skoðanasystkinum þeirra án þess að viðhafa um þau einhver stóryrði og alhæfingar.

sunnudagur, nóvember 21, 2004

Nú vantar mig upplýsingar.

Ég kalla nú á hjálp góðra tölvunörda um hvar sé gott að fá vefhýsingu á góðu verði. Endilega látiði mig vita ef þið vitið eitthvað um það.

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Fokking snjór!!

Eyðilagði fyrir mér öll plön um að byrja ekki að nota kuldaskó fyrr en í desember. Fékk lánuð skæði hjá mömmu í morgun, veit ekki hvernig verður með framhaldið. Stefni á að kaupa mér hörku skó í póstinn í des samt sem áður.

Kerran var hrikalega í eftirdragi í dag, hvaða fífl eru það sem ákveða hvaða göngustígar eru ruddir og hverjir ekki? Get víst fengið snjóþotu á morgun, hef bara áhyggjur af því að ég standist ekki mátið og hendi póstinum út í næsta runna og fari að renna mér með krökkunum. Mikið djöfull var gaman hjá þeim í dag.

mánudagur, nóvember 15, 2004

Long time no see.

Ástæður fyrir litlu bloggi eru erfiðar heimilisaðstæður seinustu daga. Hér er verið að gera baðherbergið slikk og span og þess vegna er allt í klessu á ganginum þar sem ég tölvast alla jafna. Ég hef svo bara ekki nennt að þræða netsnúruna um alla íbúð þannig að svona er þetta.

Nóg búið að gerast síðan seinast. Vinnan bara eins og alltaf og tarnir í djammi og öðru.

Svo er Arafat dauður, R-listinn deyjandi, olíufélögin búin að gera allt til að biðja afsökunar nema að lækka bensínið, kennararnir búnir að fremja pr-sjálfsmorð og ég veit ekki hvað og hvað.

Best að taka þetta í röð:

Arafat-
Hann er látinn kallinn. Engin veit í sjálfu sér hvað tekur við en maður vonar að Ísraelar gangi ekki á lagið. Þegar er búið að reyna að myrða einn af þeim sem er líklegur til að taka við.

R-listinn
Þórólfur hætti. Sama hvað aðilar tengdir Samfylkingu og Framsókn 'harma' þetta þá var afsögn hans óumflýjanleg og engum öðrum að kenna en honum sjálfum. Hann vissi fullvel á hverju hann átti von þegar hann tók þetta starf af sér og annaðhvort hefur hann ekki sagt ISG og öðrum R-listamönnum frá öllu eða þá að þeir hafa ranglesið stöðuna svona hryllilega.
Steinunn Valdís. Hver er það aftur? Já alveg rétt, þessi með skipulagsmálin, sem vildi ekki heyra mótbárur varðandi Austurbæ. Hvað þá breytingarnar á Hringbraut. 'Umræðu'pólitíkus.
Hún græðir á því að ógna engum raunverulega. Dagur og Stefán Jón tapa á því að vera sterkir.

Olían
Þvílíku endemis fíflin! Hvaða hálfviti var það sem lét sér detta það í hug að senda frá sér afsökunarbeiðni þar sem tvær setningar fara í að afsaka samráðið og 10 í að fordæma vinnubrögð Samkeppnisstofnunar og fjölmiðla? Þetta er ekki nein helvítis afsökunarbeiðni, þetta er væll.
Og ef að þessi félög vilja virkilega biðjast afsökunar þá ættu þau að LÆKKA VERÐIÐ Á BENSÍNI!

Kennarar
Búið að setja lög. Frekar slæmt mál auðvitað en það hljóta allir að sjá að eitthvað þurfti að gerast. Forysta kennara(ég ætla ekki öllum kennurum það sama og þeim) ætlaði ekkert að bakka frekar en samninganefnd sveitarfélaga.
Mér finnst málflutningur Sveitarfélagana aulalegur. Reyndar má verðandi borgarstjóri eiga það að hún kom út úr skápnum og viðurkenndi að sennilega hefði ekki verið 'vitlaust gefið' þegar sveitarfélögin vældu það í gegn að fá skólana til sín. Auðvitað hefði það komið í ljós fyrr en núna, 9 árum eftir að breytingin verður.
Stjórnarandstaðan reyndi að slá pólitískar keilur við umræðu um lögin en hitti fáar. Orð Össurar um að það hefði frekar átt að breyta skiptingu tekna ríkis og sveitarfélaga eru fáránleg. Svoleiðis ferli er reyndar þegar í gangi en það tekur auðvitað það langan tíma að verkfallið myndi standa fram yfir áramót. Þetta var viðbjóðslegur populismi sem við sáum hjá stjónarandstöðunni.

Kennarar mættu margir ekki til vinnu í dag. Þrátt fyrir að ná í gegn 130000 króna eingreiðslu í gær. Hvað er málið?

föstudagur, nóvember 05, 2004

Mér er skítsama hvort að Þórálfur verður áfram borgarstjóri.

En ef að hann hættir þá væri geðveikt ef að frændi minn Magnús Eiríksson yrði næsti borgarstjóri. Þá væri líka verið að fylgja hefðinni, hann var að forstjóri Og Vodafone, Þórólfur var hjá tal og báðir hættu þeir sem forstjórar rétt eftir að Baugur eða tók yfir hjá fyrirtækinu.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Ég NENNI ekki að tala um kosningar.

Mér finnst Rúnar Júl hafa haldið kúlinu töluvert miklu betur en Björgvin Halldórs. Hann þarf miklu minna að reyna á sig til að vera kúl, hann bara er kúl. Björgvin er alltaf að reyna og ef þú þarft að reyna þá ertu ekki. Hann gengst upp í því að segja eitthvað sniðugt og semja íslenska texta við erlend lög um aðra íslendinga. Ekki kúl.

Hér fylgir með texti úr lagi af nýjasta disk Tom Waits, Real Gone. Þessi diskur er algjör snilld.
Textinn er skrifaður frá sjónarhorni hermanns í Írak sem er að skrifa bréf heim.

Day after tomorrow

I got your letter today
And I miss you all so much, here
I can't wait to see you all
And I'm counting the days, dear
I still believe that there's gold
At the end of the world
And I'll come home
To Illinois
On the day after tomorrow

It is so hard
And it's cold here
And I'm tired of taking orders
And I miss old Rockford town
Up by the Wisconsin border
But I miss you won't believe
Shoveling snow and raking leaves
And my plane will touch down
On the day after tomorrow

I close my eyes
Every night
And I dream that I can hold you
They fill us full of lies
Everyone buys
About what it means to be a soldier
I still don't know how I'm supposed to feel
About all the blood that's been spilled
Look out on the street
Get me back home
On the day after tomorrow

You can't deny
The other side
Don't want to die
Any more than we do
What I'm trying to say,
Is don't they pray
To the same God that we do?
Tell me, how does God choose?
Whose prayers does he refuse?
Who turns the wheel?
And who throws the dice
On the day after tomorrow?

I'm not fighting
For justice
I am not fighting
For freedom
I am fighting
For my life
And another day
In the world here
I just do what I've been told
You're just the gravel on the road
And the one's that are lucky
One's come home
On the day after tomorrow

And the summer
It too will fade
And with it comes the winter's frost, dear
And I know we too are made
Of all the things that we have lost here
I'll be twenty-one today
I've been saving all my pay
And my plane will touch down
On the day after tomorrow
And my plane it will touch down
On the day after tomorrow

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Version 1.(fyrir heimska fólkið)
Mér finnst fínt að sjómannaafslátturinn verði áfram, veistu hvað sjómenn kosta núorðið!

Version 2.(fyrir útgerðarmenn)
Mér finnst fínt að sjómannaafslátturinn verði áfram, veistu hvað kjarasamningarnir þeirra kosta okkur?

Version 3. (fyrir almenna skattborgara sem eru ekki sjómenn)
Mér finnst fáránlegt að sjómannaafslátturinn sé áfram. Af hverju á ég að hjálpa útgerðarmönnum að borga laun?

Er það bara ég eða minna forsetakosningarnar í USA ykkur líka á forsetakosningarnar hérna? Nokkrir valkostir en allir jafn slæmir.

Bush- stærstu samtök frjálshyggjumanna kusu hann versta forseta sögunnar í fyrra.

Kerry- handónýtur, sama hvað menn segja. Hann hefur NÁKVÆMLEGA sömu stefnu og BNA hefur hingað haft þegar kemur að ÖLLU, nema að núna segist hann hafa verið á móti innrásinni í Írak. Þrátt fyrir það kaus hann með lögum sem gerðu Bush kleyft að ráðast þangað inn.

Nader- myndi að öllum líkindum koma upp fáránlegu þrepskiptu skattkerfi sem kæmi hrikalega út fyrir hagkerfið.