Ég hef verið að sjá hér og þar um netið pælingar um ákveðin hlut varðandi þetta Fischer mál. Þannig er mál með vexti að seinasta sumar tók forsetinn okkar ákveðna ákvörðun. Hann festi embættið í sessi sem raunverulegan þátt af löggjafarvaldinu þegar hann neitaði lögum um undirskrift.
Allt gott og vel með það. En í kringum þetta mátti svo skilja á alveg ofsalega mörgum sérfræðingum að það væri bara fullkomlega eðlilegt að búast við því að forseti gerði þetta og að menn gætu langt í frá litið á það sem svo að frumvarp frá alþingi yrði að lögum sjálfkrafa. Fréttablaðið var öðrum fjölmiðlum duglegri í að ýta þessari skoðun að okkur. En nú ber svo við að alþingi samþykkir lög um ríkisborgararétt fyrir herra Fischer þrátt fyrir að andstaðan við það í þjóðfélaginu sé ef eitthvað er meiri en í umræddu máli í sumar. Samt sem áður dettur engum, og þá síst af öllum fjölmiðlamönnum í hug að forseti synji þessu máli samþykktar. Djúp gjá á milli þings og þjóðar hvað?
Það er svo auðvitað allt annað mál að 'málskotsrétturinn' á að vera hjá þjóðinni sjálfri, ekki einum manni.