sunnudagur, nóvember 27, 2005

Þetta er fínasti pistill, þó ég haldi reyndar að Cameron sé betri en Davis.
Ég hef svosem ekkert verið að fela það sérstaklega að mér er illa við það að vera skyldaður til þess að vera í ákveðnum félögum. Þegar ég skipti seinast um vinnu var ég tekin úr einu félagi sem ég hafði aldrei beðið um að ganga í og settur í tvö sem ég hafði heldur aldrei beðið um að ganga í. Ég er hér auðvitað að tala um verkalýðsfélög.

Ég hef ekkert á móti verkalýðsfélögum og ég ætla ekkert að fullyrða það að ég myndi sniðganga þau ef ekki væri skylda að vera í þeim en mér finnst núverandi fyrirkomulag óþolandi. Þetta hefur sérstaklega setið á mér seinustu daga útaf 'Vatn fyrir alla' herferðinni sem að BSRB stendur fyrir. Það á víst að fara að festa í sessi eignarétt á vatni og vatnsréttindi sem að landeigendum hafa verið tryggð í dómaframkvæmum í einhverja áratugi. Vinstri Grænir hafa sett sig á móti því á þingi, enda er það alveg samkvæmt þeirra stefnu. Mér er slétt sama þótt að VG sé á móti í þessu máli og virði þeirra rétt alveg til þess.

Þegar aftur á móti félag sem ég er nauðugur til að vera meðlimur í og nota bene borga til af mínum tekjum án þess að ráða neitt um það fer að standa á bakvið herferð sem er beint að ákveðnum þingmálum án þess að nokkuð samráð sé haft við félagsmenn þá finnst mér menn vera farnir að teyja sig ansi langt.

Þetta mál er hápólitístk, þarna er verið að skjóta á t.d. GATS samningin og fleiri samninga sem WTO hefur gert, og snýst m.a. um eignarréttinn.

En mín gagnrýni snýst svosem ekkert um það hvort að BSRB hafi rétt fyrir sér eða ekki heldur um það að félag í stöðu BSRB eigi ekki að nota peninga sinna félagsmanna í svona herferðir. Reyndar er BSRB ekki eina félagi sem stendur að þessu, nánari listi og yfirlýsingin sjálf er hérna.
Vei

Ég held að ég hafi aldrei átt jafn mikinn pening svona seint í mánuði og ég á núna, leið svo illa yfir þessu á fimmtudaginn að ég fór og keypti mér sjónvarp. Þar sem það er ekkert loftnetstengi í mínu herbergi þurfti ég að kaupa mér langa snúru og tengja inn í Gísla herbergi. Það fór víst eitthvað í taugarnar á pabba að hafa snúruna liggjandi bara á gólfinu á milli herbergjanna þannig að í gær fór ég í iðnaðarmannaleik og boraði göt á veggi og læti. Hörkustuð bara.

Skemmtileg þessi Herra Ísland keppni. Strákarnir eru víst ekki nógu merkilegir til að fá alvöru dómnefnd þannig að þetta var bara símakeppni. Sniðugt! Svo gleymdist víst bara að birta númer og auglýsingar fyrir tvo stráka. Sniðugt!
Ég þekkti einn strák í keppninni sem varð til þess að ég horfði á keppnina 15 sinnum lengur en ég geri venjulega, sem gerir það að verkum að ég horfði í korter. Það þurfti reyndar að segja mér það nokkrum sinnum að hann væri að taka þátt þar sem ég bara einfaldlega trúði því ekki, hann er svo innilega ekki þessi týpa sem virðist alsráðandi meðal þeirra sem keppa í þessu, en kannski eru þetta bara fordómar í mér. Hann stóð sig víst ágætlega, var valin vinsælasti strákurinn, sem kom þeim sem þekkja hann reyndar lítið á óvart.

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Er Jón Skífan Ólafsson núna orðin fórnarlamb? Hann var allavega voðalega saklaus í sjónvarpinu áðan.

Magnað samt hvað þetta prinsipp hans um að vitna ekki í tveggja manna tal, eins og t.d. þegar talað er um tilraunir hans til að hafa áhrif á stjórnarmyndunarviðræður, virðist gufa upp þegar það hentar honum, eins og t.d þegar hann greinir frá símtölum á milli sín og Hannesar Hólmsteins.

Það er farið að fara ótrúlega í taugarnar á mér hvernig ALLIR fullorðnir menn sem lýsa sjálfum sér í æsku þurfa að geta þess að í dag hefðu þeir væntanlega verði taldir ofvirkir. Eða er þetta kannski einkenni á þeim sem eru mikið í fjölmiðlum almennt?

sunnudagur, nóvember 06, 2005

Stefán Jón Hafstein virðist hafa miklar áhyggjur af því að fólk taki sig alvarlega sem stjórnmálamann. Allavega var hann svo sorglegur í fréttunum á stöð 2 áðan að annað hefur varla sést lengi, eða allavega síðan hann var síðast í fjölmiðlum.

Hann var s.s. að röfla um að sigur Villa í prófkjörinu hjá sjálfstæðisflokknum þýddi það að þar væri kominn fulltrúi gamla íhaldsins sem borgarbúar höfnuðu '94. Og hann sagði að þarna hefðu verið tveir lakir kostir á ferðinni. Einmitt. Og kostirnir sem fólk hefur í efsta sætið hjá Samfó í reykjavík eru auðvitað miklu betri, Stefán Jón og Steinunn Valdís.