sunnudagur, mars 12, 2006

Mér tókst að finna grein Gunnars sem Samtökin '78 hafa kært. Hún er hér.
Þetta eru punktarnir sem mest hafa farið fyrir brjóstið á fólki:

1. Slík börn eiga það á hættu að alast upp við óvissu um kynhlutverk sitt.
2. Þau eru hneigðari til fjöllyndis.
3. Þau eru í meiri hættu á að missa foreldri (alnæmi, lyfjaneysla, sjálfsvíg). Ævilíkur samkynhneigðra karla eru aðeins um fjörutíu ár.
4. Þau eiga frekar á hættu að glíma við þunglyndi og önnur geðræn vandamál.
5. Hærra hlutfall barna sem alin eru upp með slíkum hætti verður samkynhneigt.
6. Samband samkynhneigðra er ekki eins varanlegt og gagnkynhneigðra, sérstaklega hvað homma áhrærir, og meðalsambúðartími þeirra er um þrjú ár.
7. Fjöllyndi er nánast lífsstíll homma og hefur það neikvæð áhrif á uppeldi barna.

Gunnar nefnir engar heimildir og týnir ekki til ein einustu rök fyrir fullyrðingum sínum.

Mér finnst óþarfi að kæra svona rugl því þá er hættan á því að einhver telji það marktækt. Samtökin ættu frekar að mæta þessu málefnalega og svara Gunnari einfaldlega með rökum.

laugardagur, mars 11, 2006

Einu sinni þótti mér Egill Helgason vera nokkuð sniðugur gaur. Það var þegar hann var bara með Silfur Egils en var ekki byrjaður að blogga.

Upp á síðkastið hefur Egill komið meira og meira útúr skápnum sem siðferðislegur íhaldsmaður. Honum þykir t.d. það ekki góð hugsun að samkynhneigðir geti gengið í hjónaband. Það er ekki oft sem mér blöskrar það mikið að ég öskra á tölvuna mína. En nafni minn Helgason má eiga það að honum tókst að koma þeim ósköpum af stað hjá mér. Það sem gerðist var að ég las þessa snilld:

"Einnig búið að kæra Gunnari Þorsteinsson í Krossinum til lögreglu vegna einhvers sem hann sagði um samkynhneigða. Gott og vel. Þetta er í anda félagslegrar rétthugsunar sem er fylgifiskur ákveðinnar hugarfarsbreytingar. En um leið verða til mörg tabú: Núorðið þykir til dæmis nánast saknæmt að segja að börn hafi best af því að alast upp hjá föður sínum og móður."(leturbreyting mín)

Þeir sem lásu viðbjóðinn sem Gunnar skrifaði í morgunblaðsgreininni sem varð tilefni kæru Samtakanna '78 hlýtur að blöskra þessi skrif Egils. Það hefur engin haldið því fram að það væri ekki best fyrir börn að alast upp hjá föður sínum og móður og þó svo einhver hefði gert það þá hefði einhver með samskiptahæfileika múrsteins sett betur fram mótrökin en Gunnar gerði.

Ég reyndar er ekki hlynntur svona kærum. Ég trúi því að fólk dæmist eftir gjörðum sínum og orðum. Ef ég væri kristin þá væri ég t.d. ekki í neinum vafa um hvernig Gunnar yrði dæmdur þegar kæmi að dómsdegi.

mánudagur, mars 06, 2006

Neil Young söng þetta lag á MTV verðlaunahátíð eftir að Kurt Cobain dó og tileinkaði honum lagið. Það var víst ekki þurr hvarmur í salnum.

"Needle And The Damage Done"

I caught you knockin'
at my cellar door
I love you, baby,
can I have some more
Ooh, ooh, the damage done.

I hit the city and
I lost my band
I watched the needle
take another man
Gone, gone, the damage done.

I sing the song
because I love the man
I know that some
of you don't understand
Milk-blood
to keep from running out.

I've seen the needle
and the damage done
A little part of it in everyone
But every junkie's
like a settin' sun.

fimmtudagur, mars 02, 2006

Óska Inga til hamingju með ágætan árangur í quiz dótinu sem að ég setti hérna inn um daginn, 50% er ekki svo slæmur árangur hjá manni sem hefur þekkt mig í rúmt ár. Tók það út, bæði af því að það var illa gert hjá mér og svo vegna þess að það var greinilega engin að taka það.

Mikil togstreita hjá mér núna. Var kallaður inn sem varamaður í byggingarnefnd í Kópavogi um daginn, svosem ágætt, hef alveg skemmt mér betur en allt í lagi. Fékk það svo borgað með laununum mínum frá bænum í dag. Ég er beisikklí ánægður með að fá góðan bónus ofan á mánaðarlaunin þennan mánuðinn en þetta kemur nottla allt frá útsvarsgreiðendum í kópavogi.

Dilemma dilemma.