Síðan hvenær taldist það nú perraskapur að dreifa smokkum, sama hvort það er til kvenna eða karla? Sýndu Samtökin '78 perraskap þegar þau dreifðu smokkum? Sýna Alnæmissamtökin perraskap þegar þau dreifa smokkum, m.a. í grunnskólum?
Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta er bara pólitík en mér finnst þetta engu að síður frekar lágkúrulegt, þó svo að líklega eigi þetta að vera fyndið. En þetta er svosem alveg í takt við kosningabaráttu UJ á landsvísu.
