mánudagur, febrúar 16, 2009

Ég er búin að vera að tengja mig hist og her þessa seinustu daga. Er byrjaður að tísta og er búin að tengja tístið við bæði Facebook og þetta blogg. Í dag fór ég á netið í símanum í vinnunni og tísti og uppfærði þar með statusinn hjá mér á Facebook, og þetta dót hér til hægri!

Twitter býður upp á að hægt sé að senda tíst með sms-i en það virðist ekki vera stuðningur fyrir íslenska síma ennþá. Sem er kannski allt í lagi bara.

Jú og svo er ég búin að tengja þetta blogg við Notes á Facebook.

Ég ætla að halda þessum pælingum eitthvað áfram, sjá hvað ég kemst langt.